Uppskriftir
Fiskibollur með lauksmjöri
Hversdagsmatur sem stendur fyrir sínu. Hér er lauksmjörið sem fer svo vel með fiskibollunum.
Beint í uppskriftinaSkoða vöruna
Hráefni
- Fiskibollur frá Hnýfli
- 2 laukar
- 50–80 g smjör
- 3 msk olía
- Soðnar kartöflur til að bera fram með
Aðferð
- Hitið fiskibollurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Afhýðið laukinn, skerið í tvennt og síðan í þunnar sneiðar.
- Hitið smjör og olíu á djúpri pönnu. Látið laukinn mýkjast við meðalhita í um 10 mínútur án þess að brúna hann.
- Berið fiskibollurnar fram með lauksmjörinu og soðnum kartöflum.
