
Hráefnið
Lax úr íslensku landeldi er valinn og handflakaður. Vandvirknin hefst við vinnuborðið.


Lax, salt og reykur. Og tíminn sem þarf til.






Lax úr íslensku landeldi er valinn og handflakaður. Vandvirknin hefst við vinnuborðið.

Reykmeistarinn þurrsaltar flökin og gætir þess að söltunin verði jöfn. Laxinn liggur í salti í sólarhring.

Saltið er skolað af. Flökin þorna undir hægum blæstri í annan sólarhring.

Laxinn er kaldreyktur við beyki eða tað í sólarhring. Í ofnunum hefur verið reykt síðan 1986.

Kæling og frekari þurrkun þétta flakið. Allt ferlið tekur fimm daga frá byrjun til enda.